Almyrkvi á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst 2026

Mynd
Almyrkvi 2026

Miðvikudaginn 12. ágúst verður einstakur og sögulegur viðburður þegar almyrkvi á sólu gengur yfir höfuðborgarsvæðið. Þetta verður fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík í nærri 600 ár.

Sumarið 2025 var Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins falið að vinna með sveitarfélögunum sex að undirbúningi vegna almyrkvans. Fulltrúar sveitarfélaganna og markaðsstofunnar unnu sameiginlega aðgerðaáætlun sem Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa lagt til grundvallar viðbúnaði á svæðinu. Viðbragðsaðilar, þar á meðal lögregla og slökkvilið, hafa einnig komið að undirbúningnum. Markmiðið er að íbúar og gestir geti notið þessa einstaka náttúrufyrirbæris á öruggan og ánægjulegan hátt.

Njótið almyrkvans í nærumhverfinu

Nánast allt þéttbýli höfuðborgarsvæðisins er innan almyrkvaslóðarinnar. Almyrkvinn mun því sjást jafnt í Mosfellsbæ sem á Seltjarnarnesi, þótt lengd hans verði örlítið mismunandi eftir staðsetningu. Stjórnvöld hafa því lagt áherslu á að það er óþarfi að leggja af stað í langan akstur í leit að „besta staðnum“. Munurinn á lengd almyrkvans innan höfuðborgarsvæðisins nemur aðeins fáeinum sekúndum. Best er að velja stað í nærumhverfinu, þar sem hægt er að njóta augnabliksins án þess að hafa áhyggjur af umferð, bílastæðum eða því að komast aftur heim.

Búast má við mikilli umferð þennan dag og tímabundnum götulokunum á ákveðnum stöðum þar sem mikill fjöldi fólks kemur saman. Fólk er hvatt til að kynna sér nýjustu upplýsingar, nota almenningssamgöngur og gefa sér góðan tíma.

Öryggi augnanna skiptir mestu

Aldrei má horfa beint í sólina án viðurkenndra sólmyrkvagleraugna á meðan sól sést, jafnvel þótt aðeins lítill hluti hennar sé sýnilegur. Venjuleg sólgleraugu veita ekki næga vörn. 

Upplýsingar fyrir ferðamenn

Á vef Visit Reykjavík geta ferðamenn nálgast upplýsingar á ensku um almyrkvann, ráðlagða útsýnisstaði, tímasetningar, samgöngur, öryggi og undirbúning. Þar kemur meðal annars fram að almyrkvinn hefst í Reykjavík um klukkan 17:48 og stendur í rúma mínútu.

Markaðsstofan hvetur samstarfsaðila í ferðaþjónustu til að benda gestum sínum á Visit Reykjavík og deila upplýsingum og myndbandi markaðsstofunnar á sínum miðlum en Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, útskýrir almyrkvann, tímasetningar hans og hvernig fylgjast má með honum á öruggan hátt í myndbandi sem finna má á YouTube-rás og samfélagsmiðlum Visit Reykjavík.

 

Aðgerðaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið

Vorið 2025 óskuðu Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eftir tilnefningum í aðgerðahóp vegna almyrkva á sólu. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við Reykjavíkurborg var falið að annast utanumhald með vinnu hópsins og veita honum forstöðu. Aðgerðahópinn skipa fulltrúar frá skipulags-, samskipta- eða samgöngudeildum í hverju sveitarfélagi auk upplýsingafulltrúa frá Reykjavíkurborg og fulltrúa Markaðsstofu. Hópurinn fundaði fyrst í ágúst 2025 og síðan þá hefur hópurinn fundað reglulega. Kallað hefur verið eftir samráði frá öðrum hagaðilum innan sveitarfélaga og utan svo sem lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðinni, viðburðadeildum sveitarfélaga, rekstraraðilum og fleiri. 

Aðgerðaáætlun vegna almyrkva á höfuðborgarsvæðinu var samþykkt í apríl 2026 og er gert ráð fyrir eftirfarandi ráðstöfunum:

  • Mosfellsbær: Skoðunarsvæði verður við Tungubakka. Ekki gert ráð fyrir götulokunum.
  • Seltjarnarnes: Til að stýra umferðinni verður Suðurströnd frá bílastæðinu við sundlaugina lokuð í vesturátt. Allar þvergötur sem liggja að Suðurströnd verða einnig lokaðar frá Bakkavör að Lindarbraut og Nesbala. Norðurstönd verður opin en lokað verður út að Gróttu annað hvort við Lindarbraut eða Ráðagerði. Vegna verndunar viðkvæmrar náttúru verður horft frá því að fólk safnist saman við Bakkatjörn.
  • Reykjavik: Suðurgata við Hringbraut verður lokuð til að varna umferð inn á Ægissíðu en þvergötur Suðurgötu verða einnig lokaðar. Ægissíða verður lokuð við Hofsvallagötu að vestan og við Dunhaga. Á lokaða svæðinu verði boðið upp á þjónustu á borð við matarvagna og salerni. Lokunin á Suðurgötu mun ekki hafa áhrif á umferð inn í hverfi Vesturbæjar nema Skerjafjörð sunnan flugvallar, en það hverfi verður lokað fyrir umferð inn og út í 4 til 5 klukkustundir. Til skoðunar er að bjóða upp á strætóferðir eða aðrar skipulagðar ferðir inn á lokaða svæðið.
  • Kópavogur: Ekki er gert ráð fyrir götulokunum og verið er að skilgreina skoðunarsvæði. 
  • Garðabær: Hólmatúnið á Álftanesi verður miðjan þar sem fólk getur safnast saman. Ekki er gert ráð fyrir götulokunum, en á Álftanesi verður hringakstur um Norðurnesveg og Suðurnesveg (í norður- og vesturátt).
  • Hafnarfjörður: Í Hafnarfirði verða tvö skoðunarsvæði, hið fyrsta við Hamarinn og hið seinna við Ástjörn. Ekki er gert ráð fyrir götulokunum, en má reikna með þungri umferð um Reykjanesbraut í átt að Reykjanesbæ. Jafnframt verða stórir tónleikar á Víðistaðatúni í tilefni af almyrkvanum. 

Hagnýtar upplýsingar fyrir ferðaþjónustuaðila

Hér á eftir er hægt að finna ýmsar hagnýtar vefslóðir með upplýsingum fyrir ferðaþjónustuaðila. 

Mynd
almyrkvi

Upplýsingasíða Visit Reykjavík

Hér geta ferðamann nálgast upplýsingar um almyrkvann - tímasetning, staðsetningar, umferð, lokanir, veður, skipulagðar ferðir og fleira. 

Mynd
Almyrkvi 2026

Sólmyrkvasíða Sævars Helga Bragasonar stjörnufræðings

Sævars Helgi Bragason stjörnufræðingur heldur úti vef um sólmyrkvann 2026. Á vefnum er að finna ýmsan fróðleik um náttúrufyrirbærið ásamt gagnvirku korti þar sem hægt er að sjá hvar almyrkvinn verður sýnilegur og í hversu langan tíma. 

Mynd
Hafnarfjörður jeppi

Upplýsingar og leiðbeiningar á vef Ferðamálastofu

Á vef Ferðamálastofu má finna hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar fyrir ferðaþjónustuaðila og gesti hvernig best sé að hátta undirbúningi. Markmiðið er að styðja ferðaþjónustuaðila og hagaðila við undirbúning og framkvæmd á almyrkvadeginum

Mynd
Sól Garðabær

Upplýsingafundir almannavarna

Almannavarnir hafa haldið tvo fjarfundi fyrir ferðaþjónustuaðila þar sem farið hefur verið yfir fyrirhugaðar ráðstafanir vegna almyrkvans á vesturhluta landsins þann 12. ágúst 2026. Hér er hægt að nálgast upptökur af báðum fundunum.

Upptaka af 1. kynningarfundi (13. apríl)

Upptaka af 2. kynningarfundi (4. maí)