Verðlaun

Mynd
Höfuðvinur

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins veitir árlega tvenn verðalaun: Höfuðkraftur ferðaþjónustunnar og Höfuðvinur.

Höfuðkraftur 

Höfuðkraftur er veittur þeim sem hefur með starfi sínu og stefnu eflt ferðaþjónustuna á höfuðborgarsvæðinu og stuðlað að jákvæðum áhrifum á nærumhverfi sitt og samfélag. Tilgangurinn með verðlaununum er að vekja athygli á mikilvægi ferðaþjónustu sem atvinnugreinar og gildi hennar fyrir jákvæða þróun samfélags og mannlífs á höfuðborgarsvæðinu.

Það skiptir máli að hampa því sem vel er gert og með verðlaununum Höfuðkrafti heiðrar Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins ferðaþjónustuaðila og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu fyrir árangursríkt starf. Tilnefnt er til verðlaunanna af hálfu aðildarfélaga Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, fyrirtækja og stofnana sem starfa í ferðaþjónustu. Vinningshafinn fær afhentan Höfuðkraftinn á Ferðamálaþingi höfuðborgarsvæðisins sem haldið er af Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

Ferðaþjónustuverðlaunin Höfuðkraftur voru veitt í fyrsta skipti á Ferðamálaþingi höfuðborgarsvæðisins 2025 og verða veitt árlega í framhaldinu.

Mynd
Höfuðvinur

Höfuðkraftur 2025

Íslandshótel hf. hlutu Höfuðkraft 2025. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins veitti verðlaunin en Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri, veitti þeim viðtöku. 

Höfuðvinur

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins verðlaunar áhuga og elju aðildarfélaga sinna með viðurkenningunni Höfuðvin. Viðurkenningin var fyrst veitt á Höfuðgleði 2024 og ári síðar á Ferðamálaþingi höfuðborgarsvæðisins. Hún byggist á því hve oft viðkomandi starfsmaður hjá aðildarfélaga stofunnar hefur mætt á viðburði Markaðsstofunnar og tekið þátt í starfi á vegum hennar. 

Mynd
Höfuðvinur

Höfuðvinur 2025

Lára Aradóttir, sölustjóri hjá Sky Lagoon, er Höfuðvinur Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2025. Lára hefur stutt dyggilega við bakið á starfi Markaðsstofunnar og sýnt eflingu áfangastaðarins og ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu einstakan áhuga.

Mynd
Höfuðvinur 2024

Höfuðvinur 2024

Í fyrsta skiptið sem verðlaunin Höfuðvinur voru veitt var það Valgeir Bjarnason frá BagBee sem hlaut verðlaunin. Hann mætti á flesta tengslaviðburði á vegum Markaðsstofunnar og hefur verið sérstaklega vinveittur henni í öllu samstarfi.