Ferðaþjónustuvikan

Mynd
Hallgrímskirkja

Árlega tekur Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins þátt í Ferðaþjónustuvikunni sem fyrst var haldin 2024 undir því yfirheit. Á ferðaþjónustuvikunni er lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá. Aðstandendur Ferðaþjónustuvikunnar eru Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.