Hafnarfjarðarbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins boða til opins fundar í Hafnarborg þriðjudaginn 3. júní kl. 17:00.
Í vor unnu Hafnarfjarðarbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins greiningu á áfangastaðnum Hafnarfirði með það markmið að vinna hugmyndir um hvernig hægt sé að efla áfangastaðinn ásamt móttöku ferðamanna og skemmtiferðaskipa. Verkefnið mun nýtast fyrir framtíðarsýn Hafnarfjarðarbæjar í tengslum við ferðaþjónustu og móttöku ferðamanna ásamt því að nýtast í vinnu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, m.a. í tengslum við markaðssetningu á höfuðborgarsvæðinu.
Farið var í greiningu á áfangastaðnum og haldinn var hagaðilafundur þar sem markmiðið var að ræða móttöku ferðamanna og skemmtiferðaskipa. Áhersla var á tækifæri og áskoranir og voru unnar hugmyndir um hvernig megi efla bæinn sem áfangastað fyrir ferðamenn.
Nú er boðað til opins fundar þar sem ætlunin er að fara yfir niðurstöður verkefnisins og eiga samtal um framhaldið. Hér er hægt að sjá facebook viðburð fyrir fundinn.
Öll velkomin sem hafa áhuga á þróun Hafnarfjarðarbæjar sem áfangastað.