Áfangastaðurinn Seltjarnarnes

Mynd
Seltjarnarnes

Seltjarnarnesbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins boða til opins fundar í Gallerí Gróttu á Bókasafni Seltjarnarness, Eiðistorgi, þriðjudaginn 24. mars kl. 15:00.

Í haust vann Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins í samráði við Seltjarnarnesbæ greiningu á áfangastaðnum Seltjarnarnesi með það að markmiði að móta sameiginlega sýn um það hvernig hagaðilar vilja sjá áfangastaðinn Seltjarnarnes þróast. Verkefnið nýtist fyrir framtíðarsýn Seltjarnarnesbæjar í tengslum við ferðaþjónustu ásamt því að nýtast í vinnu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, m.a. í tengslum við þróun og markaðssetningu á höfuðborgarsvæðinu.

Snemma um haustið var farið í greiningu á áfangastaðnum og í framhaldi var haldin vinnustofa með hagaðilum þann 18. nóvember sl. þar sem rætt var um sérstöðu Seltjarnarness sem áfangastaðar, áhugaverða markhópa ásamt tækifærum og áskorunum sem tengjast áfangastaðnum. Einnig voru þátttakendur beðnir um að ræða hvernig þeir myndu vilja sjá áfangastaðinn Seltjarnarnes þróast.

Nú er boðað til opins fundar þar sem ætlunin er að fara yfir niðurstöður verkefnisins og eiga samtal um framhaldið.

Öll velkomin sem hafa áhuga á þróun Seltjarnarness sem áfangastaðar þmt. íbúar, fyrirtæki í ferðaþjónustu og öðrum skyldum greinum og aðrir hagaðilar.

Nánar um fundinn hér.