Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins boðar til umræðufundar um almyrkvann fyrir ferðaþjónustuna á höfuðborgarsvæðinu, föstudaginn 13. mars kl. 11.00-12.00 á Teams.
Á fundinum mun Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðingur og eigandi Iceland at Night, m.a. fara yfir almyrkvann, hvað þarf að hafa í huga, hvar hægt er að finna áreiðanlegar upplýsingar og kort. Markaðsstofan mun síðan fara yfir sína aðkomu að verkefninu og vinnu með hagaðilum. Á fundinum verður einnig gefinn tími til umræðna um þetta stóra verkefni framundan.
Athugð að fundurinn er aðeins fyrir aðildarfélaga Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Skráning er nauðsynleg hér.