Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026

Mynd
Ferðamálaþing 2026

Frábær mæting og góður andi einkenndi Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins sem haldið var í Hlégarði þann 16. september 2026 undir yfirskriftinni Seglar og straumar. Rætt var um ferðaþjónustu í víðu samhengi á höfuðborgarsvæðinu en sérstök áhersla var á þróun, dreifingu og framtíðarsýn fyrir áfangastaðinn.

Við fengum til okkar góða gesti, meðal annars Mayu Janssen frá Amsterdam & Partners, sem deildi reynslu Amsterdam af þróun áfangastaðarins og mikilvægi öflugs samstarfs, sameiginlegrar sýnar og þess að horfa til langtímaverðmæta fyrir íbúa, gesti og atvinnulíf.

Hjalti Már Einarsson frá Datera kynnti nýja seglagreiningu fyrir höfuðborgarsvæðið og Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins fór yfir helstu strauma og þróun í ferðaþjónustu – í heiminum, á höfuðborgarsvæðinu og í starfi stofunnar.

Að lokum settumst við í sófaspjall með forseta borgarstjórnar og bæjarstjórum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Þar áttum við létt og gott samtal um stöðu ferðaþjónustunnar, tækifærin fram undan og framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið sem einn áfangastað. 

Takk innilega öll sem komuð og tókuð þátt  í þessu góða samtali um framtíð ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Dagskrá Ferðamálaþings höfuðborgarsvæðisins:

  • From Growth to Long-Term Value – Amsterdam's Place Leadership Approach
    Maya Janssen, Managing Director, Insights & Marketing Strategy Amsterdam & partners
     
  • Seglar höfuðborgarsvæðisins – ný samantekt 2026
    Hjalti Már Einarsson, framkvæmdastjóri Datera
     
  • Straumar í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
    Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
     
  • Sófaspjall með borgar- og bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu
    Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar
    Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar
    Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkurborgar
    Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar
    Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar
    Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar
     
  • Kristinn Jón Ólafsson, formaður stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins opnar þingið og veitir verðlaunin Höfuðkraftur ferðaþjónustuverðlaun höfuðborgarsvæðisins.

Fundarstjóri: Gísli S. Brynjólfsson, markaðsstjóri Icelandair

Mynd
Ferðamálaþing 2026
Mynd
Ferðamálaþing 2026
Mynd
Ferðamálaþing 2026
Mynd
Ferðamálaþing 2026
Mynd
Ferðamálaþing 2026
Mynd
Ferðamálaþing 2026