Þann 16. september mun Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins halda sitt fjórða Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins. Sama dag verður einnig haldinn Aðalfundur Markaðsstofunnar ásamt Höfuðgleðin, uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins
Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026 verður haldið í Hlégarði, Mosfellsbæ, miðvikudaginn 16. september kl. 13.00-15.00 undir yfirskriftinni Seglar og straumar. Rætt verður um ferðaþjónustu í víðu samhengi á höfuðborgarsvæðinu en sérstök áhersla verður á þróun, dreifingu og framtíðarsýn fyrir áfangastaðinn.
Dagskrá Ferðamálaþings höfuðborgarsvæðisins:
From Growth to Long-Term Value – Amsterdam's Place Leadership Approach
Maya Janssen, Managing Director, Insights & Marketing Strategy Amsterdam & partners
Seglar höfuðborgarsvæðisins – ný samantekt 2026
Hjalti Már Einarsson, framkvæmdastjóri Datera
Straumar í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Sófaspjall með borgar- og bæjarstjórum á höfuðborgarsvæðinu
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar
Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar
Kristinn Jón Ólafsson, formaður stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins opnar þingið og veitir verðlaunin Höfuðkraftur ferðaþjónustuverðlaun höfuðborgarsvæðisins.
Fundarstjóri er Gísli S. Brynjólfsson, markaðsstjóri Icelandair.
Húsið opnar kl. 12.30.
Skráning er nauðsynleg.
Höfuðgleðin 2026
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu verður haldin miðvikudaginn 16. september strax að loknu Ferðamálaþingi höfuðborgarsvæðisins.
Lagt verður af stað á vit ævintýranna kl. 15.15 frá Hlégarði í Mosfellsbæ. Mælt er með að klæða sig eftir veðri og vera í góðum skóm. Gleðin mun standa fram eftir kvöldi og verður m.a. boðið upp á kvöldmat og kvöldskemmtun.
Höfuðgleðin er einungis fyrir aðildarfélaga Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og miðast við lágmarks- og hámarksþátttöku.
Þátttökugjald per einstakling er 13.900 kr.
Skráning er nauðsynleg fyrir miðvikudaginn 2. september 2026.
Aðalfundur 2026
Aðalfundur Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins verður haldinn miðvikudaginn 16. september kl. 11.00 - 12.15 í Hlégarði, Mosfellsbæ. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf ásamt kjöri stjórnarmanna í stjórn og stefnuráð stofunnar.
Fyrirsvarsmaður fyrirtækis/sveitarfélags þarf að tilkynna Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins a.m.k. tveimur dögum fyrir aðalfund, hvaða einstaklingur fari með atkvæðisrétt þess á aðalfundi.