GJ Travel hlýtur Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2025

Mynd
Ábyrg ferðaþjónusta

Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2025 voru veitt einu elsta ferðaþjónustufyrirtæki Íslands, Guðmundi Jónassyni ehf. – GJ Travel, á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu. Það var forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, sem afhenti verðlaunin en forsetinn er verndari þeirra. 

Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu var haldinn hátíðlegur í Grósku 15. janúar síðastliðinn. Afhending hvatningarverðlauna Ábyrgrar ferðaþjónustu var einn af hápunktum dagsins og var framkvæmdastjóra Guðmundar Jónassonar ehf. – GJ Travel, Stefáni Gunnarssyni, fagnað innilega af viðstöddum þegar hann tók við verðlaununum úr hendi forseta fyrir hönd fyrirtækisins.

Hvatningarverðlaunum Ábyrgrar ferðaþjónustu var komið á fót að frumkvæði Íslenska ferðaklasans og Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2016 og voru þau nú veitt í sjöunda sinn. Verðlaununum er ætlað að auka veg ábyrgrar hegðunar og ýta undir hæfni og þekkingu stjórnenda þegar kemur að sjálfbærri og nærandi ferðaþjónustu. Dómnefnd tilnefnir þrjú fyrirtæki sem öll þykja hafa sett sér markvissa stefnu í starfsmannamálum, öryggis og gæðamálum ásamt heildstæðri sjálfbærnistefnu (sem tekur á umhverfi, nærsamfélagi og virðiskeðjunni í heild) og verðlaunar síðan eitt þeirra. Að þessu sinni voru auk verðlaunafyrirtækisins Guðmundur Jónasson ehf. – GJ Travel tilnefnd fyrirtækin Midgard Adventure og Local Guide of Vatnajökull.

Í umsögn dómnefndar segir að Guðmundur Jónasson ehf. - GJ Travel hafi í 94 ár verið leiðandi í ábyrgri ferðaþjónustu með virðingu fyrir íslenskri náttúru að leiðarljósi. Um árabil hafi fyrirtækið lagt áherslu á að lágmarka kolefnisspor, styðja við nærsamfélagið og tryggja öryggi gesta og starfsmanna.

Það er mat dómnefndar að ábyrgir og sjálfbærir rekstrarhættir endurspeglist í öllu sem fyrirtækið tekur sér fyrir hendur og er sjálfbærnin fléttuð inní starfsmannamenningu fyrirtækisins þar sem starfsfólk fær reglulega þjálfun og kemur að því að móta stefnu fyrirtækisins. Lögð er rík áhersla á öryggismenningu innan fyrirtækisins.
Við mat dómnefndar var einnig horft til samfélagslegrar ábyrgðar GJ Travel og hversu öflugt félagið hefur verið í samstarfi við stoðkerfi ferðaþjónustunnar. Þar má nefna sem dæmi Jöklarannsóknafélag Íslands, Rauða kross Íslands, KSÍ og Landsbjörgu. Loks er þess getið að vikulega sér GJ Travel um akstur eldri borgara um höfuðborgarsvæðið til verslana Bónuss.

Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu var hluti af Ferðaþjónustuviku 2025.

Markaðsstofan óskar Guðmundi Jónassyni ehf. - GJ Travel innilega til hamingju með verðlaunin. Það er ávallt ánægjulegt þegar aðildarfélagar stofunnar hljóta viðurkenningu fyrir vel unnin störf.