Höfuðborgarsvæðið áfram meðal sjálfbærustu áfangastaða samkvæmt GDS vísitölunni

Mynd
GDS index

Höfuðborgarsvæðið er aftur á meðal 10 sjálfbærustu áfangastaða samkvæmt GDS sjálfbærnivísinum (Global Destination Sustainability Index) og heldur þar með sætinu frá því í fyrra, þegar það lenti í 10. sæti. Alls tóku um 100 áfangastaðir þátt í GDS sjálfbærnivísinum á árinu 2026.

GDS sjálfbærnivísirinn er alþjóðlegur mælikvarði sem metur frammistöðu áfangastaða þegar kemur að sjálfbærni og hvetur þá áfram í átt að sjálfbærri framtíð. GDS sjálfbærnivísirinn er tengdur Heimsmarkmiðunum og viðmiðum Alþjóðaráðsins um sjálfbæra ferðaþjónustu (GSTC). Jafnframt er Alþjóðlega ferðamálastofnunin (UNWTO) samstarfsaðili verkefnisins. Það eru Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins og Meet in Reykjavík sem standa í dag að þátttöku höfuðborgarsvæðisins í sjálfbærnivísinum í samstarfi við hagaðila.

Ánægjulegt er að sjá höfuðborgarsvæðið halda sínu sæti, en höfuðborgarsvæðið er einnig í 4. sæti meðal meðalstórra borga og hækkar þar upp um eitt sæti milli ára ásamt því að fá hæstu einkunn í flokknum samfélag, sem endurspeglar félagsleg gæði, inngildingu og öryggi.

Það er því ljóst að höfuðborgarsvæðið er fremst í flokki áfangastaða á sviði sjálfbærni. Þetta er sannarlega í takti við þá stefnu sem hefur verið sett fyrir áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið. En í síðustu viku var samþykkt ný Áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins 2027-2030 þar sem stefnan er m.a. að vera leiðandi í sjálfbærri ferðaþjónustu með áherslu á að auka jákvæð áhrif á samfélag, efnahag, umhverfi og upplifun gesta. Jafnframt er sett fram markmið um að vera áfram á topp 10 listanum.