Mikil gleði var í Höfuðgleðinni, uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem haldin var 16. september. Gleðin hófst í Hlégarði þar sem við fengum góða kynningu frá Basalt og Gagarín um ullarsýninguna sem stefnt er að opna fljótlega í Álafosskvosinni. Síðan var lagt af stað í óvissuferð í rútum frá Arctic Adventures og ICS - Iceland Coach Services. Hóparnir fengu góðar móttökur hjá gestgjöfunum í Gljúfrasteini, Icebike Adventures og Fálkakletti í Esjustofu. Þegar hóparnir komu aftur í Hlégarð tók Bjarni Freyr Báruson frá Volcano Trails á móti gestum, allir fengu að njóta fordrykks í boði Mosfellsbæjar og bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Hilmar Gunnarsson, ávarpaði hópinn. Boðið var upp á steikarhlaðborð frá Blik Bistro og kvöldið endaði í góðu fjöru með leik og söng, þegar fyrst var farið í spurningaleik, síðan steig trúbador á sviðið og loks tók María Hjálmarsdóttir við sem DJ þangað til að síðustu gestir fóru.
Við þökkum öllum ofangreindum sem tóku þátt í að láta þessa uppskeruhátíð verða að veruleika. Hún hefði ekki orðið nema með stuðningi og frábærum bakhjörlum. Við þökkum sömuleiðis öllum sem tóku þátt og hlökkum til að halda gleðina aftur á næsta ári.