Hvaða fyrirtæki er Höfuðkraftur ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu 2026?

Mynd
Helgufoss

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stendur að Höfuðkrafti og veitir verðlaunin ár hvert. Höfuðkraftur er veittur fyrirtæki sem hefur með starfi sínu og stefnu eflt ferðaþjónustuna á höfuðborgarsvæðinu og stuðlað að jákvæðum áhrifum á nærumhverfi sitt og samfélag. Tilgangur Höfuðkrafts er að vekja athygli á mikilvægi ferðaþjónustu sem atvinnugreinar og gildi hennar fyrir jákvæða þróun samfélags og mannlífs á höfuðborgarsvæðinu. ​

Aðildarfélagar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins geta sent inn tilnefningu með því að fylla út skráningarformið hér að neðan. Tilgreina þarf nafn fyrirtækis og rökstyðja stuttlega hvers vegna það eigi verðlaunin skilið. Að loknu tilnefningartímabili metur dómnefndin allar innsendar tillögur og getur óskað eftir frekari upplýsingum frá tilnefndum fyrirtækjum ef þörf krefur. 

Greint verður frá því hvaða fyrirtæki hlýtur Höfuðkraft á Ferðamálaþingi Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 16. september 2026.

Tekið er á móti tilnefningum til og með 12. júní 2026.

Hér er hægt að skrá tilnefningu.