Í átt að sjálfbærni í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu

Image
Reykjavík

Borgir og svæði um allan heim vinna að því í mismiklum mæli að efla sjálfbærni sinna áfangastaða. Það er erfitt að finna stefnu þar sem sjálfbærni er ekki hluti af framtíðarsýn og reynt er að tryggja jákvæða þróun sem er í sátt við íbúa, atvinnugreinina og ferðamennina sjálfa. Því mestu skiptir íbúar séu ánægð með þann stað sem búið er á og þróun hans inn til framtíðar.

Ferðamenn vilja hafa sem minnst áhrif á umhverfi og menningu

Samkvæmt rannsóknum, m.a. á vegum erlendra bókunarfyrirtækja, má sjá að meirihluti ferðamanna vilja hafa sem minnst áhrif á umhverfi og menningu áfangastaða sem þeir ferðast til. Hvort þeim tekst það og vita hvernig það er gert er annað mál. Þetta felur hins vegar í sér að reyna að minnka neikvæð umhverfisáhrif, styðja við efnahag, menningu og samfélagið á áfangastað, heimsækja staði sem eru ekki þaulsetnir, minnka kolefnisfótsporið og leggja af mörkum til náttúrunnar, umhverfisins og dýralífsins.

Samstarfsvettvangur til þess að stilla saman strengi

Nú þegar ferðaþjónustan er kominn á skrið aftur er mikilvægt að eiga vettvang þar sem að ferðaþjónustuaðilar, sveitarfélögin og stoðkerfið stillir saman strengi. Til þess að stuðla að sátt íbúa, ferðaþjónustunnar og sveitarfélaganna um málefni ferðaþjónustunnar og vinna þannig í átt að sjálfbærni sem er leiðarstef í stefnu íslenskra stjórnvalda um ferðaþjónustu. Til þess að þarf að vera samstarfsvettvangur þar sem umræða um gildi og þróun áfangastaðarins eru rædd. Samtal um innviði, upplifun, vöru og þjónusta sem ætti að bjóða upp og já mögulega ekki bjóða upp á.

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins er þessi vettvangur fyrir höfuðborgarsvæðið sem telur Garðabæ, Kópavog, Hafnarfjörð, Mosfellsbæ, Reykjavík og Seltjarnarnes. Stofan var var stofnuð á vormánuðum af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins. Hlutverk hennar er að þróa og markaðssetja áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið í heild. Efla atvinnustarfsemi og auka gjaldeyristekjur.

Tökum þátt í samtalinu og samstarfinu

Stofunni er m.a. ætlað að vera bæði markaðs- og áfangastaðastofa. Hún mun vinna að því að efla vitund og þekkingu um áfangastaðinn til ferðamanna og efla samkeppnishæfni hans í alþjóðlegri samkeppni. Stofan skal efla samstarf og samlegð um málefni ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu milli sérstaklega sveitarfélaga, atvinnulífsins og stoðkerfisins en einnig eiga samtal við íbúa. Hún mun sinna bæði markaðs- og kynningarstarfi en einnig áfangastaðaþróun og þar með styrkja stoðir og uppbyggingu ferðaþjónustunnar og stuðla að fagmennsku.

Við viljum því hvetja alla ferðaþjónustuaðila á höfuðborgarsvæðinu að gerast aðili að Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og taka þátt í samtalinu og samstarfinu um þróun og markaðssetningu áfangastaðarins. Ásamt því að vera virk í samfélagi, tengslastarfi og samstarfi aðila á svæðinu og skapa þannig aukinn slagkraft – í átt að sjálfbærni í ferðaþjónustu.

Grein á Visir.is 6. september 2023