Íris María Stefánsdóttir hefur störf hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðsins

Image
Íris María Stefánsdóttir

Íris María Stefánsdóttir hefur hafði störf sem verkefnastjóri markaðsmála hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Íris er markaðsfræðingur frá viðskiptaháskólanum í Árósum í Danmörku. Hún starfaði áður hjá Kópavogsbæ sem markaðs- og kynningarstjóri og þar áður sem markaðsstjóri Íslenska dansflokkinum og hjá Syddjurs Musikskole þar sem hún sá um almannatengsl og viðburðastjórnun.