Íslandshótel hljóta hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2026

Mynd
Ábyrgð ferðaþjónusta 2026

Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2026 voru veitt á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu sem var haldinn í Grósku þann 21. apríl. Í ár hlaut fyrirtækið Íslandshótel verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur og leiðandi hlutverk í sjálfbærni. Verðlaunin voru afhent af forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, sem er verndari verðlaunanna. 

Hvatningarverðlaunum Ábyrgrar ferðaþjónustu var komið á fót að frumkvæði Íslenska ferðaklasans og Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2018. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á fyrirtækjum sem sýna í verki hvernig ábyrgð, sjálfbærni og fagmennska geta farið saman. Dómnefnd tilnefnir þrjú fyrirtæki sem öll þykja hafa sett sér markvissa stefnu í umhverfis-, starfsmanna-, öryggis- og gæðamálum ásamt heildstæðri sjálfbærnistefnu og verðlaunar síðan eitt þeirra. Að þessu sinni voru auk verðlaunafyrirtækisins Íslandshótel einnig tilnefnd fyrirtækin Sky Lagoon og Tanni Travel. 

Að mati dómnefndar skar Íslandshótel sig úr fyrir heildstæða og markvissa nálgun á sjálfbærni sem endurspeglast í stefnu, daglegum rekstri og ákvarðanatöku fyrirtækisins. Íslandshótel er leiðandi félag í íslenskri ferðaþjónustu og hefur í meira en þrjá áratugi haft mótandi áhrif á þróun greinarinnar. Fyrirtækið rekur í dag 17 hótel víðs vegar um landið og hefur frá upphafi lagt áherslu á gæði, fagmennsku og ábyrgð, þar sem sjálfbærni er órjúfanlegur hluti af starfseminni.

Í rökstuðningi dómnefndarinnar kemur fram að Íslandshótel hafi byggt upp öfluga umgjörð um sjálfbærnimál og sé í fararbroddi þegar kemur að innleiðingu alþjóðlegra viðmiða. Öll hótel félagsins hafa hlotið Green Key vottun, sem felur í sér strangar kröfur um umhverfisstjórnun og ábyrga nýtingu auðlinda.

Þá hefur fyrirtækið einnig sýnt forystu í loftslagsmálum með því að vera fyrst íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja til að undirrita Glasgow-yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsaðgerðir í ferðaþjónustu. Með þeirri skuldbindingu hefur Íslandshótel sett sér skýr markmið um að draga verulega úr losun og ná kolefnishlutleysi á næstu áratugum.

Áhersla fyrirtækisins á samfélagslega ábyrgð nær einnig til mannauðs og jafnréttis. Íslandshótel var fyrsta ferðaþjónustufyrirtækið til að hljóta hinseginvottun Samtakanna ’78 og hefur jafnframt innleitt jafnlaunavottun og markvissa þjálfun starfsfólks. Þá hefur félagið haft jákvæð áhrif á nærsamfélög víða um land með samstarfi við staðbundin verkefni og sterkum tengslum við nærumhverfi sitt.

Að mati dómnefndar hefur Íslandshótel ekki aðeins fylgt þróun í átt að ábyrgari ferðaþjónustu heldur einnig mótað hana og sett viðmið fyrir aðra í greininni. Með skýrri stefnu, gagnsæi og raunverulegum árangri sé fyrirtækið verðugur handhafi hvatningarverðlaunanna í ár.

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins óskar Íslandshótelum innilega til hamingju með verðlaunin. Það er ávallt ánægjulegt þegar aðildarfélagar stofunnar hljóta viðurkenningu fyrir vel unnin störf.