Þann 20. október var boðað til fundar um mataráfangastaðinn höfuðborgarsvæðið með aðildarfélögum Markaðsstofunnar. Á fundinum komu aðilar úr veitingageiranum sem tengjast Markaðsstofunni saman til að ræða tækifæri sem felast í mataráfangastaðnum og möguleika á samstarfi.
Samkvæmt þátttakendum fundarins eru tækifærin sem felast í mataráfangastaðnum m.a. að höfuðborgarsvæðið búi yfir fjölda hágæða veitingastaða og góðri sögu að segja. Miðað við stærð áfangastaðarins er hér að finna fjölbreytta flóru veitingastaða. Veitingastaði sem bjóða upp á veitingar í hæsta gæðaflokki og eru jafnvel með Michelin viðurkenningu. Margir hverjir eru einnig litlir og bjóða upp á mjög persónulega þjónustu. Auk þess felast tækifæri í sögu matarmenningar Íslands, árstíðabundnum hráefnum og þeirri staðreynd að stutt sé frá hráefni á disk gestsins. Oft þekkja eigendur og kokkar bóndann og sjómanninn sem þeir versla við og vita því nákvæmlega hvaðan hráefnið kemur, sem skilar sér í gæðum og jákvæðri upplifun gesta.
Fundurinn leiddi jafnframt í ljós að það er áhugi á samstarfi um mataráfangastaðinn höfuðborgarsvæðið, sér í lagi sameiginlegu kynningarsamstarfi með sérstakri áherslu á áhrifavalda og fjölmiðlaferðir. Í því samhengi var rætt um ýmis tækifæri sem felast í markvissri og sameiginlegri kynningu á mataráfangastaðnum, og að efla megi samstarf við fleiri hagaðila s.s. Íslandsstofu og matarviðburði á höfuðborgarsvæðinu. Einnig var rætt um að skoða frekar hvernig samstarfi væri háttað hjá öðrum áfangastöðum og þá sérstaklega borgum á Norðurlöndunum sem við erum í samkeppni við.
Markaðsstofan mun í framhaldi þessar fundar setja saman faghóp meðal veitingaaðila sem eru aðildarfélagar að Markaðsstofunni. Þar mun áherslan vera á að deila þekkingu og ræða möguleika á frekara kynningarsamstarfi en nú þegar er með aðildarfélögum en með sérstakri áherslu á mataráfangastaðinn. Gert er ráð fyrir að faghópurinn hittist 1-2 á ári og verður fyrsti fundur í ársbyrjun 2027.
Athugið þátttaka er aðeins fyrir aðildafélaga Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins – skráning í aðild hér.