Mikil ánægja meðal ferðamanna og fleiri mæla með höfuðborgarsvæðinu

Mynd
Hafnarfjörður

Erlendir ferðamenn eru áfram mjög ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu og fleiri eru líklegir til að mæla með svæðinu sem áfangastað. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir hönd Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins sumarið 2026. Ánægja með ýmsa þætti þjónustu og innviða hefur einnig aukist frá sumrinu 2024.

Alls eru 94% ferðamanna mjög ánægð með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu og er það sambærilegt við niðurstöður fyrri kannana. Jafnframt hefur hlutfall þeirra sem eru líklegir til að mæla með áfangastaðnum hækkað. Hlutfall svokallaðra hvetjenda, þeirra sem gefa einkunnina 9 eða 10 á meðmælaskalanum, fer úr 58% sumarið 2024 í 63% sumarið 2026.

Samanburður sumarkannananna 2024 og 2026 sýnir jákvæða þróun í mati ferðamanna á ýmsum þáttum þjónustu og innviða á höfuðborgarsvæðinu. Ánægja með öryggismál mælist nú 97%, sem er hæsta hlutfall í könnunum Markaðsstofunnar til þessa. Ánægja með aðgengi hefur jafnframt aukist úr 80% í 90% og ánægja með upplýsingagjöf og merkingar úr 84% í 90%. Ánægja með gistingu, afþreyingu, hreinlætisaðstöðu og veitingar hefur einnig aukist frá sumrinu 2024. Þá hækkar einnig ánægja með hreinlætisaðstöðu úr 73% í 84%, og afþreyingu úr 77% í 85%. 

Í ár var einnig í fyrsta sinn spurt hvort ferðin til Reykjavíkur hafi verið peninganna virði. Niðurstaðan er afar jákvæð, en 87% telja ferðina klárlega eða að mestu leyti peninganna virði. 

Niðurstöðurnar gefa jákvæða mynd af upplifun erlendra ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu. Þær veita jafnframt mikilvægar upplýsingar fyrir áframhaldandi þróun áfangastaðarins og móttöku ferðamanna. 

Niðurstöður úr sumarkönnuninni 2026 má nálgast hér. Þar má einnig nálgast niðurstöður fyrri kannana (sumar 2024 og vetur 2025).