Morgunspjall með vin verður haldið í nýju skrifstofuhúsnæði Travel Connect að Suðurlandsbraut 34, 5. júní kl. 08.45-10.00.
Spjallið að þessu sinni verður með smá óhefðbundnum hætti en við ætlum að fá ykkar sýn á fyrstu drög að uppfærðri stefnumörkun og áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins sem síðan verður lögð til samþykktar á aðalfundi í haust.
Við tökum síðan létt spjall um sumarið framundan. Í lok fundar mun síðan fulltrúi frá Travel Connect aðeins segja ykkur frá því sem þau eru að gera þessa dagana.
Létt og skemmtileg samverustund korter í sumarfrí – þar sem gefst tími til þess að spjalla yfir góðum kaffibolla.
Að þessu sinni er aðeins aðildarfélögum boðið á fundinn.
Skráning er nauðsynleg hér.