Morgunspjall með vin verður haldið í Sjóminjasafninu í Reykjavík, föstudaginn 17. apríl kl. 08.45 - 10.00.
Á fundinum fáum við þær stöllur Svanlaugu Rós Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóra FlyOver, Ástu Maríu Marinósdóttir, framkvæmdastjóra Special Tours og frá Whales of Iceland ásamt Ragnhildi Ágústsdóttir, eigenda Lava Show, til þess að segja okkur frá samstarfi sínu á Grandanum. Þær ætla síðan að spjalla við okkur um sumarið framundan og stöðuna í ferðaþjónustunni. Markaðsstofan mun einnig fara yfir stöðuna á verkefnum og því sem er framundan. Í lokin munum við fá kynningu á Sjóminjasafninu.
Aðildarfélagar eru hvattir til að bjóða með sér félögum úr ferðaþjónustunni sem ekki hafa gerst aðilar að Markaðsstofunni en hafa áhuga á að verða aðilar. Viðburðurinn er að öðruleyti aðeins opinn aðildarfélögum.
Létt og skemmtileg samverustund þar sem tími gefst til þess að spjalla yfir góðum kaffibolla.
Skráning er nauðsynleg hér.