Morgunspjall með vin 27. febrúar

Mynd
Hið íslenska reðasafn

Morgunspjall með vin verður haldið föstudaginn 27. febrúar kl. 08.45-10.00 hjá Hinu íslenzka reðasafni, Hafnartorgi.

Í þetta sinn býður Hið íslenzka reðasafn heim og mun bjóða okkur að skoða safnið eftir spjallið.

Við munum byrja á því að fá kynningu frá Faxaflóahöfnum á nýrri farþegamiðstöð sem opnar í vor. Í framhaldinu munum við fá kynningu á Hinu íslenzka reðasafni.

Við munum að venju eiga gott spjall um stöðuna í ferðaþjónustu og hvað er framundan.

Aðildarfélagar eru hvattir til að bjóða með sér félögum úr ferðaþjónustunni sem ekki hafa gerst aðilar að Markaðsstofunni en hafa áhuga á að verða aðilar. Viðburðurinn er að öðruleyti aðeins opinn aðildarfélögum.

Skráning er nauðsynleg hér.