Næsta Morgunspjall með vin verður haldið á Kjarvalsstöðum, 28. ágúst kl. 08.45-10.00.
Í þessu fyrsta spjalli haustsins býður Listasafn Reykjavíkur heim á Kjarvalsstaði. Við fáum Veru Vilhjálmsdóttur, sérfræðing hjá Rannsóknarmiðstöð ferðamála (RMF), til okkar og hún mun kynna fyrir okkur niðurstöður rannsóknar meðal gesta á söfnum
og sýningum í Reykjavík sem framkvæmd var síðasta vetur. Rannsóknin veitir innsýn í ferðavenjur, áhugamál, hvata og upplifun gesta sem heimsækja söfn og sýningar í Reykjavík.
Í framhaldinu ætlum við að taka stöðuna á ykkur varðandi hvernig sumarið hefur gengið sem og hvernig haustið lýtur út framundan. Í lok fundar mun Nathalía Druzin Halldórsdóttir, kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur, kynna starfsemi safnsins.
Létt og skemmtileg samverustund í byrjun haustsins, þar sem gefst tími til þess að spjalla yfir góðum kaffibolla.
Aðildarfélagar eru hvattir til að bjóða með sér félögum úr ferðaþjónustunni sem ekki hafa gerst aðilar að Markaðsstofunni en hafa áhuga á að verða aðilar. Viðburðurinn er að öðruleyti aðeins opinn aðildarfélögum.
Skráning er nauðsynleg hér.