Morgunspjall með vin 9. október

Mynd
Whales of Iceland

Morgunspjall með vin verður haldið í Hvalasafninu - Whales of Iceland, 9. október kl. 08.45-10.00.

Í þessu morgunspjalli ætlum við að hittast í Hvalasafninu – Whales of Iceland. Þar er nýlega búið að gera ákveðnar viðbætur og verður gaman að skoða breytinguna og fá kynningu á safninu. Við ætlum jafnframt að segja ykkur aðeins frá árangri áfangastaðarins í GDS sjálfbærnivísinum og setja síðan fókusinn á jólin (já þau eru handa við hornið!). En þær Björg Jónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg, Sunna Magnúsdóttir, verkefnisstjóri menningar- og ferðamála hjá Hafnarfjarðarbæ, og Vigdís Másdóttir, kynningar- og markaðsstjóri Kópavogs segja okkur frá því sem er framundan í kringum jólin og aðventuna með áherslu á áfangastaðinn fyrir erlenda ferðamenn.

Í framhaldinu munum við ræða stuttlega hvað við getum gert sjálf til þess að efla jólaandann og höfuðborgarsvæðið enn frekar fyrir erlenda ferðamenn, ásamt því að taka púlsinn á okkur eins og venjulega.

Létt og skemmtileg samverustund, þar sem gefst tími til þess að spjalla yfir góðum kaffibolla.

Skráning er nauðsynleg hér.