Morgunspjall og jólabingó 11. desember

Mynd
Hafnarfjörður fjörukráin

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins býður aðildarfélögum og vinum í morgunspjall og jólabingó, föstudaginn 11. desember kl. 08.45-10:15.

Gestgjafar að þessu sinni er Fjörukráin / Hótel Víking og munum við hittast í jólastemningu á Fjörukránni.

Jólabingó Markaðsstofunnar hefur fest sig í sessi sem hátíðlegur viðburður þar sem heppin jólabörn geta unnið glæsilega vinninga frá ferðaþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þeir aðildarfélagar sem hafa áhuga á að gefa vinninga í bingóinu geta sent tölvupóst á Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins á Margréti Wendt margret@reykjavikandpartners.is

Aðildarfélagar eru hvattir til þess að bjóða með sér félögum úr ferðaþjónustunni sem ekki hafa enn gerst aðilar.

Hittumst í sannkölluðu hátíðarskapi á Fjörukránni og eigum saman notalega jólastund.

Skráning er nauðsynleg hér.