Samstarf Markaðsstofa landshlutanna eflist

Image
Náttúra

Í lok árs 2023 gekk Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins inn í samstarf Markaðsstofa landshlutanna. Með samstarfinu er lögð áhersla á að vinna saman að eflingu ferðaþjónustunnar um allt land í samstarfi við fyrirtæki og sveitarfélög, í gegnum sameiginleg verkefni.

Forsvarsfólk Markaðsstofa landshlutanna fagnar þessari viðbót. Með tilkomu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins eru nú markaðs-og áfangastaðastofur í öllum landshlutum sem lokar hringnum og gerir það að verkum að hægt er að vinna sameiginlega að enn öflugri verkefnum með sameiginlegt leiðarljós; Að gera Ísland allt að heilsársáfangastað með sjálfbærni að leiðarljósi.

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins var stofnuð 3. apríl 2023 af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins. Hlutverk stofunnar er að þróa og markaðssetja áfangastaðinn í heild. Áhersla er á að efla atvinnustarfsemi og auka gjaldeyristekjur.

Samhliða stofnun Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins var áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins 2023–2026 birt, sú fyrsta sem unnin hefur verið fyrir svæðið.