Ratsjáin er þróunarverkefni fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu sem vilja efla getu sína og auka samkeppnishæfni og stefna í átt að sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu. Ratsjáin hefst í janúar 2025, en skráning byrjar nú í desember 2024.
Helstu dagsetningar:
- Kynningafundur á netinu 9. desember kl 11:30 (Skráning hér)
- Umsóknarfrestur: 17. janúar 2025
- Hamingjuskál (Kick-off): 15. janúar 2025 í Reykjavík á Ferðaþjónustuvikunni
- Verkefnið hefst formlega: 28. janúar 2025
- Lokaviðburður: 3. apríl 2025 á Akureyri
Hvað bíður þátttakenda?
- Fimm lotur með áherslu á sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu.
- Aðgangur að sérstöku vinnusvæði á netinu þar sem þátttakendur fá fræðslu og taka þátt í verkefnum.
- Vinnustofur á netinu þar sem unnið er með jafningjarýni og umræður í hópum.
- Aðgangur að leiðsögn og stuðningi frá sérfræðingum í ferðaþjónustu.
Verð og stuðningur:
Þátttökugjald er aðeins 15.000 krónur á fyrirtæki, og hægt er að nýta starfsmenntasjóði til að mæta kostnaði.
Markmið verkefnisins:
Ratsjáin 2025 leggur áherslu á að efla sjálfbærni í íslenskri ferðaþjónustu í samræmi við stefnu stjórnvalda um að gera Ísland að leiðandi landi í sjálfbærri þróun. Með Ratsjánni gefst fyrirtækjum einstakt tækifæri til að byggja upp þekkingu og hæfni sem skilar sér í aukinni verðmætasköpun og sterkari rekstri.
Hvernig skrái ég mig?
Það er einfalt að skrá sig! Smelltu á umsóknarformið hér til að fylla út umsóknina og tryggja þátttöku fyrir 17. janúar 2025.
Ekki missa af þessu tækifæri til að taka þátt í Ratsjánni 2025 og vera hluti af framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu!
Komdu með í ferðalag framtíðarinnar í ferðaþjónustu – Taktu þátt í Ratsjánni 2025!