Sky Lagoon, Hallgrímskirkja og Harpa helstu seglar höfuðborgarsvæðisins

Mynd
Sky Lagoon

Sky Lagoon, Hallgrímskirkja og Harpa eru þrír helstu seglar höfuðborgarsvæðisins, hvort sem horft er til leitaráhuga á erlendum mörkuðum eða meðmæla gervigreindartóla. Þetta kemur fram í nýrri greiningu sem Datera framkvæmdi fyrir Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins í sumar. Greiningin sýnir jafnframt að sterk staða í Google-leit tryggir ekki sjálfkrafa samsvarandi sýnileika þegar ferðamenn leita ráða hjá gervigreindinni.

Í ferðaþjónustu er talað um að seglar séu þeir ferðamannastaðir sem hafa þann eiginleika að laða til sín ferðamenn, annað hvort til landsins eða á tiltekið svæði, og þannig geta fleiri notið góðs af seglunum. Þetta er í fyrsta sinn sem sýnileiki ferðamannastaða í svörum gervigreindartóla er greindur með þessum hætti fyrir höfuðborgarsvæðið og borinn saman við leitaráhuga í hefðbundnum leitarvélum en slík greining var fyrst gerð árið 2023.

„Við létum gera fyrstu greininguna á seglum höfuðborgarsvæðisins fyrir þremur árum til þess að skoða tækifærin á höfuðborgarsvæðinu. Síðan þá hefur margt breyst hvernig ferðamenn leitar sér upplýsinga og innblásturs m.a. með tilkomu gervigreindar. Það er mikilvægt fyrir öll svæði að fylgjast reglulega með því hvernig seglarnir eru að þróast og hvar þeir eru sýnilegir. Með þessari greiningu fáum við, fyrirtæki og sveitarfélög betri upplýsingar til að þróa áfangastaðinn, styrkja kynningu og nýta betur þau tækifæri sem felast í seglunum“, segir Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

Sky Lagoon heldur efsta sætinu

Sky Lagoon er áfram efst á lista yfir leitaráhuga á höfuðborgarsvæðinu, Hallgrímskirkja er í öðru sæti og Harpa í því þriðja. Þar á eftir fylgja Víkingaþorpið í Hafnarfirði í fjórða sæti og Hið íslenzka reðasafn í því fimmta. Greiningin tók einnig til almennrar afþreyingar í Reykjavík. Norðurljós voru vinsælasta viðfangsefnið, en þar á eftir fylgdu hvalaskoðun, verslun, dagsferðir út fyrir borgina og söfn og sýningar. 

Leitarhluti greiningarinnar var unninn með sömu aðferðafræði og árið 2023 til að tryggja samanburðarhæfni niðurstaðna. Skoðuð voru helstu ferða- og upplýsingatengdu leitarorð sem tengjast ferðamannastöðum á höfuðborgarsvæðinu, með áherslu á Bretland og Bandaríkin og leitir á Íslandi til hliðsjónar.

Sömu þrír staðir efstir í gervigreindarsvörum

Í gervigreindarhluta greiningarinnar voru fjögur gervigreindartól spurð spurninga sem ferðamenn gætu notað við að skipuleggja ferð eða leita hugmynda á meðan á dvöl stendur. Svörin voru greind frá þremur sjónarhornum: ferðamaður staddur í Reykjavík, og ferðamenn í Bretlandi og Bandaríkjunum að skipuleggja stutta ferð.

Sky Lagoon var sá staður sem oftast var nefndur í svörum gervigreindartólanna. Hallgrímskirkja og Harpa fylgdu þar á eftir, en Sólfarið og Perlan deildu næstu sætum.

Upplýsingaleit færist frá hefðbundnum leitarvélum yfir í gervigreindartól

Þegar niðurstöðurnar eru bornar saman við greininguna sem framkvæmd var 2023 sést að leitum hefur fækkað mikið frá því að síðasta greining var gerð. „Það þýðir ekki að áhuginn hafi minnkað, heldur er ljóst að upplýsingaleitin er að færast frá hefðbundnum miðlum“ segir Hjalti Már Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Datera. 

Hann segir jafnframt að „ferðamenn hafa hingað til fyrst og fremst stólað á leitarvélar þegar að kemur að leit að upplýsingum og innblæstri. En nú er kominn áhrifavaldur í upplýsingaleitina, það eru öll gervigreindartólin sem við flest hver notum orðið daglega. Það er því gríðarlega mikilvægt að vita hvað þau eru að segja og hverju þau mæla með. Þessi greining sýnir okkur einnig að góð staða vörumerkja og ferðamannastaða í leit er ekki ávísun á meðmæli frá gervigreindartólum.“ 

Skýrsluna með niðurstöðum greiningarinnar má nálgast hér.