Sky Lagoon hlýtur Höfuðkraft 2026

Mynd
Höfuðvinur og höfuðkraftur

Höfuðkraftur eru ferðaþjónustuverðlaun fyrir höfuðborgarsvæðið sem veitt eru árlega á Ferðamálaþingi höfuðborgarsvæðisins. 

Höfuðkraftur er veittur þeim sem hefur með starfi sínu og stefnu eflt ferðaþjónustuna á höfuðborgarsvæðinu og stuðlað að jákvæðum áhrifum á nærumhverfi sitt og samfélag. Tilgangurinn með verðlaununum er að vekja athygli á mikilvægi ferðaþjónustu sem atvinnugreinar og gildi hennar fyrir jákvæða þróun samfélags og mannlífs á höfuðborgarsvæðinu.  

Það skiptir máli að hampa því sem vel er gert og með verðlaununum Höfuðkrafti heiðrar Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins ferðaþjónustuaðila og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu fyrir árangursríkt starf. Tilnefnt er til verðlaunanna af hálfu aðildarfélaga Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, fyrirtækja og stofnana sem starfa í ferðaþjónustu. Vinningshafinn fær afhentan Höfuðkraft á Ferðamálaþingi höfuðborgarsvæðisins sem haldið er af Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og var að þessu sinni í Hlégarði í Mosfellssveit í dag, miðvikudaginn 16. september. 

Verðlaunin Höfuðkraftur 2026 hlýtur fyrirtækið Sky Lagoon 

Í rökstuðningi segir: „Sky Lagoon hefur á stuttum tíma öðlast sess sem einn vinsælasti ferðamannastaður landsins og er einn af meginseglum höfuðborgarsvæðisins fyrir ferðamenn. Um leið hefur Sky Lagoon gætt þess að bjóða íbúa í nærumhverfinu og aðra landsmenn velkomna með skilaboðum á íslensku. Staðsetning Sky Lagoon á Kársnesi hefur verið lyftistöng fyrir Kópavog sem og höfuðborgarsvæðið í heild og böðin eru frábært dæmi um hvernig íslensk menning, siðir og náttúruauðlindir geta myndað grunn að ferðaþjónustufyrirtæki í fremstu röð.“

Það var Kristinn Jón Ólafsson, formaður stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri sem veittu verðlaunin en Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir, tekju- og vörumerkjastjóri Sky Lagoon veitti þeim viðtöku. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins óskar verðlaunahafanum til hamingju með Höfuðkraft ársins 2026.

Sævar Helgi Bragason er Höfuðvinur 2026

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins verðlaunar einnig ár hvert einn aðildarfélaga sinna með viðurkenningunni Höfuðvin. Að þessu sinni er viðurkenningin veitt fyrir einstaka elju, úthald og dugnað sem hafði áhrif á alla landsmenn og skipti höfuðmáli við skipulagningu eins stærsta viðburðar í íslenskri ferðaþjónustu á síðari árum. Verðlaunahafinn er Sævar Helgi Bragasyni sem landsmenn allir þekkja sem Stjörnu-Sævar. Sævar Helgi vakti fyrstur manna athygli á þeim áskorunum og tækifærum sem fólust í almyrkva á sólu 12. ágúst 2026, löngu áður en nokkur veitti málinu athygli. Honum tókst að vekja fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir til vitundar um að undirbúnings væri þörf og að fjöldi fólks myndi vilja sjá þetta mikla náttúruundur með eigin augum.