Gefin hefur verið út skýrsla um undirbúning og skipulag almyrkvans á höfuðborgarsvæðinu sem gekk yfir vesturhluta landsins þann 12. ágúst 2026. Í skýrslunni er m.a. fjallað um aðgerðaáætlunina sem unnin var fyrir höfuðborgarsvæðið, kynningarstarf sem fór fram ásamt aðkomu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins að samráðshópi stjórnvalda um almyrkvann og samstarf við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Í skýrslunni stendur m.a.: "Það hafði lengi verið að vitorði manna á borð við Sævar Helga Bragason að almyrkvinn 12. ágúst 2026 myndi verða mikilvægur viðburður sem búa sig þyrfti undir. Aukið álag myndi skapast vegna komu ferðamanna og viðbúið að þeir ferðamenn sem væru á landinu myndu hópast vestur á bóginn. Að sama skapi þyrfti að huga að skipulagi vegna íbúa. Vinna aðgerðahóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins miðaði að því að raska daglegu lífi íbúanna sem minnst en tryggja í leiðinni öryggi þeirra og umgjörð sem hentaði atburðinum."
Þar stendur einnig að "eitt af því sem verkefnið leiddi vel í ljós var hve öflugar Markaðsstofur landshlutanna reynast í að tengja saman sveitarfélög, stofnanir, atvinnulíf og stjórnvöld og skapa samræðu og samvinnu þvert yfir skipulagsheildir og embætti."
Hér má nálgast skýrsluna.