Tiptoe Reykjavík komið í loftið

Mynd
Tiptoe Reykjavík

Í vikunni kynnti Markaðsstofan nýja markaðsnálgun, „Tiptoe Reykjavík“ eða „Tiplað um höfuðborgarsvæðið“ á íslensku, í samstarfi við aðildarfélaga. Um er að ræða létta og skemmtilega markaðsnálgun fyrir allt höfuðborgarsvæðið, undir merki Visit Reykjavík, þar sem sett er í forgrunn sjálfbær, meðvituð og hæg ferðaþjónusta – með ný ævintýri í huga. 

Þetta er í fyrsta sinn sem unnið er með allt höfuðborgarsvæðið á þennan hátt í markaðssetningu fyrir ferðamenn. Unnið er með eina heildarsögu og upplifun, þar sem hvert svæði fær þó að njóta sín. Ætlunin er að hvetja ferðamenn til þess að kynna sér allt höfuðborgarsvæðið á eigin hraða en jafnframt leggja áherslu á fjölbreytta ferðaþjónustukjarna sem henta fjölbreyttum hópi gesta. Unnið hefur verið með hagaðilum að því að meta hvaða svæði ætti að kynna og hvaða staði. Ferðamenn eru einnig hvattir til þess að vera sitt besta ferðasjálf (e. travelself) en það er nýirði úr orðabók Markaðsstofunnar.

„Um allan heim er kallað eftir jafnvægi í ferðaþjónustu. Ferðamenn leita einnig í síauknum mæli að ábyrgum valkostum. Því er mikilvægt að svæði og borgir viti fyrir hvað þau vilja standa og hvað þau vilja bjóða upp á. Með Tiptoe Reykjavík kynnum við nýja nálgun sem hvetur til meðvitundar og hægari ferðamáta en jafnframt að finna sitt besta ferðasjálf, sem ferðast af virðingu og tengist svæðinu á dýpri máta” segir Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. „Við trúum því m.a. að ábyrgðin hefjist hjá hverjum og einum ferðamanni, með litlum ákvörðunum og það er kjarni Tiptoe Reykjavik – að kynna og gefa ferðamönnum hugmyndir án þess að vera með boð og bönn,” segir hún jafnframt.

Fyrsta kafli Tiptoe Reykjavík er hvatning um að taka þátt í leik um að tipla um höfuðborgarsvæðið hvort sem ferðamenn eru á svæðinu eða eru að hugsa um að heimsækja það. Leikurinn stendur til loka ágúst og geta ferðamenn unnið veglegan pakka með m.a. flugi, gistingu og margskonar afþreyingu á höfuðborgarsvæðinu.  

Meira á tiptoereykjavik.is