Áfangastaðurinn Kópavogur

Mynd
Kópavogur

Í september gaf Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins út samantekt um verkefnið Áfangastaðurinn Kópavogur. Samantektin dregur fram styrkleika bæjarins og tækifæri til að efla hann sem áfangastað. Helstu niðurstöður benda til þess að með auknum sýnileika, betri tengingum og heildstæðari upplifun megi hvetja gesti til að dvelja lengur í bænum.

Verkefnið byggir á greiningu og samráði við hagaðila, meðal annars vinnustofu í nóvember 2025 og opnum fundi í febrúar 2026. Verkefnið var unnið í samstarfi við Kópavogsbæ og MH ráðgjöf og er hluti af vinnu Markaðsstofunnar við þróun ferðaþjónustukjarna á höfuðborgarsvæðinu.

Í niðurstöðunum kemur fram að Kópavogur búi yfir fjölbreyttu aðdráttarafli á sviði baðmenningar, náttúru, menningar, verslunar og afþreyingar. Tækifærin felist meðal annars í að tengja Sky Lagoon betur við aðra upplifun í bænum, efla hafnarsvæðið og strandlengjuna á Kársnesi, bæta gönguleiðir og dvalarsvæði í Smáranum og efla fjölskylduvæna afþreyingu á grænum svæðum allt árið um kring.

Þvert á svæðin er lögð áhersla á skýrari merkingar, betri upplýsingagjöf og greiðara aðgengi fyrir gangandi og hjólandi. Jafnframt þurfi að vernda gæði náttúru- og útivistarsvæða og tryggja að þróunin bæti upplifun bæði íbúa og gesta.

"Við erum þakklát öllum sem tóku þátt í þarfagreiningunni og það er gaman að sjá hversu mikinn áhuga íbúarnir sýndu verkefninu. Nú hefst vinna við meta hvað hægt er að ráðast í til þess að styrkja Kópavogsbæ sem áfangastað", segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. 

Samantektina um verkefnið má nálgast hér.