Áfangastaðurinn Seltjarnarnes

Mynd
Seltjarnarnes

Nýútgefin samantekt Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins um verkefnið Áfangastaðurinn Seltjarnarnes dregur fram sameiginlega sýn hagaðila um hvernig þeir vilja sjá áfangastaðinn Seltjarnarnes þróast. Verkefnið byggir á greiningu og samráði við hagaðila, meðal annars vinnustofu í nóvember 2025 og opnum fundi í mars 2026. Verkefnið var unnið í samstarfi við Seltjarnarnesbæ og MH ráðgjöf og er hluti af vinnu Markaðsstofunnar við þróun ferðaþjónustukjarna á höfuðborgarsvæðinu.

Í niðurstöðunum kemur fram að framtíðarsýn hagaðila byggi á fimm áherslum. Hin fyrsta er náttúruvernd, en mikilvægt sé að leggja áherslu á verndun, stýringu og fræðslu til þess að svæðið haldist rólegt og ósnortið. Einnig er fjallað um innviði og stiga, en þörf er á samræmdu stígakerfi, betri merkingum og tengingum milli helstu áfangastaða. Í þriðja lagi er komið inn á þörfina að tryggja nauðsynlega þjónustu, eins og salerni og vistvænt sorpflæði. Fjórða áherslan fjallar um styrkingu lykilstaða svæðisins, svo sem Gróttu, Nesstofu, Ráðagerðis og Eiðistorgs. Loks er fjallað um styrkingu samgangna, þá sér í lagi almenningssamgangna, og stýringu bílaumferðar til að draga úr álagi og bæta aðgengi. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins mun vinna áfram með þessar niðurstöður í samstarfi við Seltjarnarnesbæ.

Samantektina um verkefnið má nálgast hér.